Ég er ógeðslega fúl í dag útí alla þessa fávita í kringum mig. Það hefur ekkert með mig að gera! (Allavega ekki í dag).
Ég er líka fúl út í að vera misskilin. Af hverju má maður ekki vera eitthvað meira en eitt í þessu samfélagi. Af hverju má ég ekki vera félagshyggjumanneskja en líka með einstaklingsframtaki án þess að vera talin mögulega með persónuleikaröskun. Hvað með það þótt ég hafi pláss fyrir meira en eitthvað eitt í hausnum á mér. Og hvað með það þó ég sé kristin? Já hvað með það? Er ég þá ekki pönkari? Hver segir það? Hvelvítis fávitaskapur er þetta! Hvað með það þótt ég sé Hiv er eitthvað erfitt að skilja það?
Hvaða andskotans þröngsýni er þetta? Eins og það sé allt eftir uppskrift. Eins og það sé hægt að þóknast öllum? Vá!
Og hver ákvað að setja mig útundan? Hver ákvað að nærveru minnar væri ekki óskað? Djöfuslins fávitaskapur. Djöfuls pungsvitafýla af öllu hérna í kringum mig, shit! Ég hef fullt af hæfileikum sem eru ekkert að njóta sín m.a. vegna þess að ég er ekki "memm"… Þetta ætti að vera bannað.
Sé það hvernig þið reynið að horfa undan þegar ég er nálægt. Bíddu þykist þú ekki þekkja mig núna?
Hvað? Já ég spurði að því! W.T.F.!
Kv. No label.